Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
26. nóvember 2009

    NágrannavarslaMos­fells­bær, Sjóvá og Lög­regla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins héldu fund um ná­granna­vörslu í Mos­fells­bæ þriðju­dag­inn 24. nóv­em­ber kl. 17:00 í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar. Ná­granna­varsla hef­ur fyr­ir löngu sann­að sig sem mik­il­væg­ur hlekk­ur í að fækka glæp­um og þá sér­stak­lega inn­brot­um á heim­ili, í bíla og al­menn­um þjófn­aði á eig­um fólks. Þar sem ná­granna­varsla er virk hef­ur skemmd­ar­verk­um einn­ig fækkað og dreg­ið úr veggjakroti.

    NágrannavarslaMos­fells­bær, Sjóvá og Lög­regla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins héldu fund um ná­granna­vörslu í Mos­fells­bæ, þriðju­dag­inn 24. nóv­em­ber kl. 17:00 í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar.

    Ná­granna­varsla hef­ur fyr­ir löngu sann­að sig sem mik­il­væg­ur hlekk­ur í að fækka glæp­um og þá sér­stak­lega inn­brot­um á heim­ili, í bíla og al­menn­um þjófn­aði á eig­um fólks. Þar sem ná­granna­varsla er virk hef­ur skemmd­ar­verk­um einn­ig fækkað og dreg­ið úr veggjakroti.

    Ná­granna­varsla felst í sam­vinnu ná­granna um að gera um­hverfi sitt og heim­ili ör­ugg­ari. Með því móti er leit­ast við að draga úr inn­brot­um, þjófn­aði og skemmd­ar­verk­um.  Ná­granna­varsla hef­ur ver­ið þekkt í ára­tugi og hef­ur víða ver­ið sett upp með góð­um ár­angri bæði á Ís­landi og víða er­lend­is. Á fund­in­um verð­ur hug­mynd­in að ná­granna­vörslu í Mos­fells­bæ kynnt íbú­um.

    Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri setti fund­inn. Lög­regl­an mun sagði frá að­komu sinni að ná­granna­vörslu, Sjóvá kynnti  hand­bók um ná­granna­vörslu.

    Nán­ari upp­lýs­ing­ar um ná­granna­vörslu, t.a.m. verklags­regl­ur má finna á mos.is/nagranna­varsla.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00