Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
8. maí 2013

    Nú er mik­il fram­kvæmd­argleði í Mos­fells­bæ. Kynnt hef­ur ver­ið átak í sölu at­vinnu­lóða í Mos­fells­bæ en með­al ann­ars mun bær­inn einn­ig bjóða upp á fjár­mögn­un vegna lóð­anna og sann­gjarna skil­mála. Bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar hef­ur sam­þykkt að nýta sér heim­ild­ir til að lækka gatna­gerð­ar­gjöld og fella nið­ur bygg­ing­ar­rétta­gjöld á lóð­um und­ir at­vinnu­hús­næði. Með þessu vill Mos­fells­bær hvetja fyr­ir­tæki og at­vinnu­rek­end­ur til fjár­fest­inga og stuðla að því að bær­inn verði fyrsti val­kost­ur þeirra sem eru með upp­bygg­ingu í huga. Þetta er í fyrsta skipti sem Mos­fells­bær býð­ur upp á slík kjör.

    Mosfellsbær lækkar lóðaverð og býður fjármögnunNú er mik­il fram­kvæmd­argleði í Mos­fells­bæ. Á blaða­manna­fundi þann 28.nóv­em­ber kynnti Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri átak í sölu at­vinnu­lóða í Mos­fells­bæ. Bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar hef­ur sam­þykkt að nýta sér heim­ild­ir til að lækka gatna­gerð­ar­gjöld og fella nið­ur bygg­ing­ar­rétta­gjöld á lóð­um und­ir at­vinnu­hús­næði. Með þessu vill Mos­fells­bær hvetja fyr­ir­tæki og at­vinnu­rek­end­ur til  fjár­fest­inga og stuðla að því að bær­inn verði fyrsti val­kost­ur þeirra sem eru með  upp­bygg­ingu í huga. Bær­inn mun einn­ig bjóða upp á fjár­mögn­un vegna lóð­anna og sann­gjarna skil­mála. Þetta er í fyrsta skipti sem Mos­fells­bær býð­ur upp á slík kjör.
    „Það er von okk­ar að með því að koma á móts við at­vinnu­rek­end­ur og fjár­festa með þess­um hætti muni hjól at­vinnu­lífs­ins fara að snú­ast og að áfram­hald­andi upp­bygg­ing í bæn­um komi íbú­um Mos­fells­bæj­ar til góða,“ seg­ir Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri.
    Lóð­irn­ar sem um ræð­ir eru ann­ars veg­ar við Sunnukrika sem er nýtt svæði und­ir at­vinnu­starf­semi í hjarta Mos­fells­bæj­ar og ligg­ur við Vest­ur­landsveg. Hins veg­ar á at­hafna­svæði við Desja­mýri í út­jaðri bæj­ar­ins næst höf­uð­borg­inni.

    Á fund­in­um kynnti Teit­ur Gúst­afs­son inn­kaupa­stjóri hjá Ístak einn­ig lóð­ir á Tungu­mel­um sem Ístak hef­ur til sölu. Við þetta til­efni lýsti Teit­ur yfir ánægju starfs­fólks Ístaks er með veru sína hérna í bæn­um en eins og flest­um er kunn­ugt þá flutti Ístak höf­uð­stöðv­ar sín­ar í Mos­fells­bæ fyrr á ár­inu.

    Á fund­in­um kom fram að Mos­fells­bær býð­ur upp á góð­ar sam­göngu­leið­ir og stað­setn­ingu með til­liti til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lands­byggð­ar­inn­ar. Fyr­ir fyr­ir­tæki í rekstri get­ur vega­lengd milli höf­uð­stöðva og hafn­ar skipt miklu máli og þá stát­ar Mos­fells­bær bæði af sama­burð­ar­hæf­um vega­lengd­um og greið­fær­um vegi sem ligg­ur ekki, nema að litlu leyti, í gegn­um íbúða­byggð.

    _____________________________________________________________

    BYGG­ING­AR­LÓЭIR:

    *  Hér má lesa nán­ar um laus­ar lóð­ir í Mos­fells­bæ,  verð, stærð lóða og nálg­ast deili­skipu­lags­gögn, lóða og mæli­blöð og önn­ur gögn vegna um­sókna um lóð­ir, hvort sem um er að ræða at­vinnu­lóð­ir eða íbúða­lóð­ir.

    *   Hér má lesa FRÉTTA­TIL­KYNN­INGU – Áskor­un til upp­bygg­ing­ar

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00