Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
21. mars 2018

    Árs­reikn­ing­ur Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2017 var lagð­ur fram í bæj­ar­ráði í dag og jafn­framt tek­inn til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn. Rekstr­arnið­ur­staða A og B hluta er tals­vert betri en gert var ráð fyr­ir í fjár­hags­áætlun árs­ins.

    Árs­reikn­ing­ur Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2017 var lagð­ur fram í bæj­ar­ráði í dag og jafn­framt tek­inn til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn.

    Rekstr­arnið­ur­staða A og B hluta er tals­vert betri en gert var ráð fyr­ir í fjár­hags­áætlun árs­ins. Það má helst skýra með aukn­um tekj­um vegna hærri launa­tekna íbúa, íbúa­fjölg­un og því að verð­lag þró­að­ist hag­stæð­ara en ráð var fyr­ir gert. Rekstr­arnið­ur­staða árs­ins var já­kvæð um 560 millj­ón­ir en hafði ver­ið áætluð 159 millj­ón­ir.

    Tekj­ur árs­ins námu alls 10.016 millj­ón­um, launa­kostn­að­ur 4.724 millj­ón­um og ann­ar rekstr­ar­kostn­að­ur 4.039 millj­ón­um. Fram­legð nem­ur því 1.253 millj­ón­um en að teknu til­liti til fjár­magnsliða. Veltufé frá rekstri er 1.236 millj­ón­ir eða rúm­lega 12,3% af tekj­um. Eig­ið fé í árslok nam 5.594 millj­ón­um og eig­in­fjár­hlut­fall 32,2%. Skulda­við­mið fer lækk­andi og er 103,9% sem er vel inn­an þess 150% há­marks sem kveð­ið er á um í lög­um.

    Framund­an er áfram­hald­andi upp­bygg­ing inn­viða í Mos­fells­bæ. Á síð­ustu árum hef­ur ver­ið ver­ið lögð áhersla á upp­bygg­ingu fram­halds­skóla, íþrótta­húss, hjúkr­un­ar­heim­il­is og að­stöðu fyr­ir fé­lags­st­arf eldri borg­ara. Stærsta verk­efn­ið sem sveit­ar­fé­lag­ið hef­ur með hönd­um nú er bygg­ing Helga­fells­skóla. Það er leik- og grunn­skóli í ný­bygg­ing­ar­hverfi í hraðri upp­bygg­ingu sem áætlað er að muni kosta um 3.500 millj­ón­ir á næstu tíu árum. Einn­ig má nefna bygg­ingu knatt­húss sem tek­ið verð­ur í notk­un á fyrri hluta næsta árs.

    Skuldastaða sveit­ar­fé­lags­ins er góð mið­að við þá upp­bygg­ingu sem átt hef­ur sér stað á und­an­förn­um árum. Sú upp­bygg­ing er í sam­ræmi við markmið sveit­ar­fé­lags­ins um góða heild­stæða þjón­ustu við alla ald­urs­hópa og fjölg­un íbúa.

    Íbú­ar Mos­fells­bæj­ar voru 10.560 um síð­ustu ára­mót en fjölg­un­in var um 8% á milli ára sem er meiri en áætlan­ir gerðu ráð fyr­ir. Mos­fells­bær er sjö­unda fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins og þar störf­uðu 656 starfs­menn í 528 stöðu­gild­um í árslok 2017.

    Fjár­hags­staða Mos­fells­bæj­ar er traust og rekst­ur­inn ábyrg­ur. Fræðslu­mál eru lang­stærsti mála­flokk­ur­inn en til hans runnu 3.988 millj­ón­ir eða 50% skatt­tekna. Til fé­lags­þjón­ustu var veitt 1.477 millj­ón­um og eru þar með­talin mál­efni fatl­aðs fólks. Íþrótta- og tóm­stunda­mál er þriðja stærsta verk­efni bæj­ar­ins en til þeirra mála var var­ið um 874 millj­ón­um. Sam­tals er því 79% skatt­tekna Mos­fells­bæj­ar var­ið til fræðslu-, fé­lags­þjón­ustu, íþrótta- og tóm­stunda­mála.

    Árs­reikn­ing­ur­inn verð­ur tek­inn til seinni um­ræðu í bæj­ar­stjórn þann 4. apríl 2018.

    Nán­ari upp­lýs­ing­ar veit­ir Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00