Vakin er athygli á því að á virkum dögum ekur vagn frá Strætó BS tvær hraðferðir milli Mosfellsbæjar og miðborgar Reykjavíkur. Um er að ræða leið nr. 6 sem leggur af stað frá Háholti í Mosfellsbæ kl. 7:19 og 8:19. Um 15 mínútur tekur að aka frá miðbæ Mosfellsbæjar að Lækjartorgi.
Vakin er athygli á því að á virkum dögum ekur vagn frá Strætó BS tværhraðferðir milli Mosfellsbæjar og miðborgar Reykjavíkur. Um 15 mínútur tekur að aka frá miðbæ Mosfellsbæjar að Lækjartorgi.
Um er að ræðaleið nr. 6 sem leggur af stað frá Háholti í Mosfellsbæ kl. 7:19 og 8:19. Hún ekur beina leið að skiptistöðinni við Ártún og þaðan hefðbundna leið sem er niður Miklubraut, fram hjá Landspítala og Háskóla Íslands, fram hjá Tjörninni, niður að Lækjartorgi, upp Hverfisgötu og að Hlemmi.
Áætlunin er því eftirfarandi:
Háholt Mos – 7:19 og 8:19
Ártún – 7:21 og 8:21
Kringlan – 7:25 og 8:25
Landspítalinn – 7:28 og 8:28
Háskóli Íslands – 7:30 og 8:30
Lækjartorg – 7:34 og 8:34
Hlemmur – 7:39 og 8:39