Nú liggur fyrir fyrirkomulag á akstri ofan úr Mosfellsdal í samræmi við óskir aðalfundar Víghóls, íbúasamtaka í Mosfellsdal. Ákveðið hefur verið að morgunakstur verði á virkum dögum ofan úr Dal. Um er að ræða tilraunaverkefni sem stendur fram til 5. júní. Aksturinn hefst á mánudaginn 15. apríl.

Skólabíll mun annast aksturinn í stað áætlunarferðar Strætó b/s (leigubíll). Ókeypis er í ferðina og ekki þarf að hringja eftir bílnum. Ekið verður niður að Háholti, þar sem hægt verður að tengjast leiðakerfi Strætó b/s.
Ferðin miðar að því að hægt sé að ná leið 15, sem fer frá Háholti 07:18.
Skólabíllinn er með þessum hætti í sinni fyrstu ferð að aka sem almenningsvagn.
Tímatafla Skólabíls lítur þá svona út:
Laxnes/Hraðastaðir | 07:05 |
Tjaldanes | 07:08 |
Háholt | 07:13 |
Selholt/Skeggjastaðir | 07:30 |
Laxnes | 07:37 |
Leirvogstunga | 07:45 |
Krikaskóli | 08:00 |
Varmárskóli | 08:05 |