Þriðjudaginn 16. október, kl. 18:30-22:00, verður haldinn opinn fundur menningar- og nýsköpunarnefndar um endurskoðun stefnu Mosfellsbæjar í menningarmálum.
Opinn fundur menningar- og nýsköpunarnefndar um endurskoðun stefnu Mosfellsbæjar í menningarmálum.
Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar vinnur að endurskoðun á menningarstefnu bæjarins og leitar eftir þátttöku og tillögum íbúa við þá vinnu.
Á fundinum verður leitað svara við því hverjar áherslur Mosfellsbæjar eiga að vera þegar kemur að menningarmálum í bænum á komandi árum. Íbúum gefst gott tækifæri til að koma hugmyndum og tillögum sínum á framfæri.
Fundurinn verður haldinn í Hlégarði þriðjudaginn 16. október kl. 18:30-22:00.
Allt áhugafólk um menningu er hvatt til að mæta!
Boðið verður upp á léttan málsverð og listamenn úr Mosfellsbæ munu stíga á stokk.