Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábendingu um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2013. Bæjarlistamanni er jafnframt veittur menningarstyrkur og verður útnefning að vanda tilkynnt í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Tilnefning

Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listamanna í Mosfellsbæ, sem til greina koma að bera sæmdarheitið bæjarlistamaður ársins 2013.
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar útnefnir ár hvert bæjarlistamann Mosfellsbæjar. Bæjarlistamaður hlýtur styrk frá Mosfellsbæ. Bæjarlistamaður kynnir sig og verk sín innan Mosfellsbæjar á því ári sem hann er tilnefndur.
Einungis einstaklingar, sem búsettir eru í Mosfellsbæ og hópar og samtök, sem starfa í bæjarfélaginu koma til greina. Þá setur menningarmálanefnd það einnig sem skilyrði að tilnefndir einstaklingar eða hópar hafi verið virkir í listgrein sinni.
Ábendingar þurfa að hafa borist Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar í síðasta lagi 1. júní 2013. Ábendingar skulu berast rafrænt í gegnum heimasíðu bæjarins.
Menningarsvið Mosfellsbæjar.