Þriðjudagskvöld 19. júlí og aðfaranótt miðvikudags 20. júlí er stefnt að því að malbika hringtorg á Vesturlandsvegi við Þingvallaveg
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Þriðjudagskvöld 19. júlí og aðfaranótt miðvikudags 20. júlí er stefnt að því að malbika hringtorg á Vesturlandsvegi við Þingvallaveg. Vegkaflinn verður lokaður og hjáleiðir merktar meðan á framkvæmd stendur skv. viðlögðu lokunarplani 8.0.16.
Áætlað er að framkvæmdin standi yfir milli kl. 20:00 til kl. 06:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.