Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka, ef veður leyfir: Miðvikudaginn 4. júlí er stefnt að því að fræsa og malbika vinstri akrein og öxl á Vesturlandsvegi í átt að Mosfellsbæ, frá hringtorgi við Úlfarfellsveg að hringtorgi við Korpúlfsstaðaveg.
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka, ef veður leyfir: Miðvikudaginn 4. júlí er stefnt að því að fræsa og malbika vinstri akrein og öxl á Vesturlandsvegi í átt að Mosfellsbæ, frá hringtorgi við Úlfarfellsveg að hringtorgi við Korpúlfsstaðaveg. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur skv. viðlögðu lokunarplani 8.0.69.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 06:00 til kl. 15:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Ábyrgðamaður veghaldara er Hallvarður 699-6450.
Ábyrgðamaður verktaka er Marel 660-1919.
Umsjón merkinga er Ingvi Rafn 660-1921.