Unnið er við að fjarlægja undirslátt undan brúargólfi göngubrúar yfir Vesturlandsveg við Krikahverfi í Mosfellsbæ í dag og á morgun. Vegna þessa þarf að loka tímabundið fyrir umferð eftir Vesturlandsvegi undir brúna. |
Unnið er við að fjarlægja undirslátt undan brúargólfi göngubrúar yfir Vesturlandsveg við Krikahverfi í Mosfellsbæ í dag og á morgun. Vegna þessa þarf að loka tímabundið fyrir umferð eftir Vesturlandsvegi undir brúna.
Lokað verður annarsvegar við hringtorg að Lágafelli og hins vegar við hringtorg við Hafravatnsveg. Í dag miðvikudaginn 1. febrúar verður akbraut fyrir umferð til Reykjavíkur lokað frá kl. 13:00 til kl. 16:00 og á morgun fimmtudag 2. febrúar verður akbraut fyrir umferð frá Reykjavík lokað frá kl. 13:00 til kl. 16:00.
Á meðan þessar lokanir vara er notast við hjáleið um Bjarkarholt – Háholt, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.