Leiklistarval unglingadeildar, skipað nemendum úr 9.og 10. bekk, hefur undanfarið unnið hörðum höndum að uppsetningu söngleikjarins Wake me up before you go go eftir Hallgrím Helgason. Það er María Pálsdóttir leikkona sem leikstýrir hópnum ásamt Hafdísi Pálsdóttur tónlistarkennara við skólann sem hefur séð um tónlistaratriði og útsetningar.

Söngleikurinn var sýndur nemendum unglingadeildar á árshátíðardaginn 19. mars en tvær sýningar voru opnar almenningi, miðvikudaginn 20. mars og fimmtudaginn 21. mars kl. 19:30. Sýningar fóru fram í hátíðarsal skólans.