Mosfellsbær óskar eftir tilboðum frá áhugsömum og hæfum ráðgjöfum í hönnun nýbyggingar fyrir leik- og grunnskóla fyrir nemendur á aldrinum 1-15 ára í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Fyrir liggur deiliskipulag um 19.292 m2 skólalóð. Gert er ráð fyrir að byggður verði skóli fyrir um 700 börn og um 130 starfsmenn. Áætluð endanleg stærð skólabyggingarinnar er um 7.350 m2 brúttó á tveim hæðum. Gert er ráð fyrir að skólinn verði byggður í fjórum áföngum á 8-10 ára tímabili.

Markmiðið er að byggja hagkvæman og vel útfærðan skóla sem mætir þörfum metnaðarfulls skólastarfs. Litið verður til þess að skólinn verði hagkvæmur í rekstri, að hljóðvist, lýsing og loftgæði verði sem best og byggingin í heild sinni falli þannig að umhverfi sínu að auðvelt sé að tengja saman skólastarf, náttúru, umhverfi og samfélag.
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum frá hönnunarhópum sem samanstanda af eftirfarandi faghönnuðum:
- Arkitektum
- Verkfræðihönnuðum
- Landslagsarkitektum
- Ráðgjöfum í brunahönnun
- Ráðgjöfum í hljóðvist
Samkvæmt áætlun skal fullnaðarhönnun 1. áfanga lokið í desember 2016 en útboð jarðvinnu skal fara fram í október 2016.
Útboðsgögn á geisladiski verða afhent í þjónustuveri á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Þverholti 2 frá og með þriðjudeginum 2.febrúar 2016.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en föstudaginn 18. mars 2016, kl. 11.00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.