Mosfellsbær hefur nú sett í loftið kynningarmyndband um notkun kortavefsjár á vef bæjarins.
Bæjarbúar og viðskiptavinir geta þar nálgast upplýsingar um allt er lýtur að fasteignum bæjarins og umhverfi, hvort heldur eru stígar eða veitulagnir svo eitthvað sé nefnt. Það er von bæjarins að með þessu verði nýting kortavefsjár enn styrkt sem öflugt verkfæri fyrir íbúa og aðra hagaðila.