Nú stendur fyrir dyrum kjör um hverjir hljóti sæmdarheitið íþróttamaður og íþróttakona Mosfellsbæjar 2014. Eins og síðustu ár kjósa aðal- og varamenn í Íþrótta- og tómstundanefnd ásamt bæjarbúum íþróttakarl og íþróttakonu Mosfellsbæjar ársins 2014. Íbúar Mosfellsbæjar kjósa íþróttafólk ársins inni á íbúagáttinni
Nú stendur fyrir dyrum kjör um hverjir hljóti sæmdarheitið íþróttamaður og íþróttakona Mosfellsbæjar 2014.
Eins og síðustu ár kjósa aðal- og varamenn í Íþrótta- og tómstundanefnd ásamt bæjarbúum íþróttakarl og íþróttakonu Mosfellsbæjar ársins 2014.
Íbúar Mosfellsbæjar kjósa íþróttafólk ársins inni á íbúagáttinni þar sem búið er að bæta inn valmöguleika sem heitir „Kosningar“
Hægt verður að greiða atkvæði frá 8. – 18. janúar. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 22. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá við hátíðlega athöfn.
Hér má sjá nöfn þeirra einstaklinga sem tilnefndir eru fyrir árið 2014. Þar er hægt að lesa nánar um íþróttafólkið og allt um helstu afrek þeirra á árinu.
Hægt er að kjósa með því að fara inn í íbúagáttina hér.
Athugið að velja skal eina konu og einn karl.