Útnefningar og ábendingar óskast vegna kjörs íþróttakonu og -karls Mosfellsbæjar 2018.
Útnefningar og ábendingar óskast vegna kjörs íþróttakonu og -karls Mosfellsbæjar 2018.
Þau sem eru gjaldgeng sem íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar skulu koma úr röðum starfandi félaga í bænum eða vera íbúi í Mosfellsbæ sem stundar íþrótt sína utan Mosfellsbæjar, enda sé íþróttin ekki í boði innan bæjarins.
Einnig er óskað eftir útnefningu og ábendingum um íþróttafólk sem hefur orðið Íslandsmeistarar, deildarmeistarar, bikarmeistarar, landsmótsmeistarar og hefur tekið þátt í og/eða æft með landsliði.
Vinsamlegast sendið útnefningar á dana@mos.is fyrir 23. desember 2018.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson íþróttafulltrúi Mosfellsbæjar í síma 660-0750.
– Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar