Útnefning íþróttakonu og -karls Mosfellsbæjar 2015 fer fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá fimmtudaginn 21. janúar 2016 kl. 19:00. Hægt er að senda útnefningar á mos@mos.is fyrir 18. desember. Þeir sem eru gjaldgengir sem íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar skulu koma úr röðum starfandi félaga í bænum eða vera íbúi í Mosfellsbæ sem stundar íþrótt sína utan Mosfellsbæjar, enda sé íþróttin ekki í boði innan bæjarins.
Útnefning íþróttakonu og -karls Mosfellsbæjar 2015 fer fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá fimmtudaginn 21. janúar 2016 kl. 19:00.
Þeir sem eru gjaldgengir sem íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar skulu koma úr röðum starfandi félaga í bænum eða vera íbúi í Mosfellsbæ sem stundar íþrótt sína utan Mosfellsbæjar, enda sé íþróttin ekki í boði innan bæjarins.
Allar útnefningar og ábendingar sendist á mos[hjá]mos.is. Einnig er óskað eftir útnefningu og ábendingum um íþróttafólk sem hefur orðið Íslandsmeistarar, deilda-meistarar, bikarmeistarar, landsmótsmeistarar og hefur tekið þátt í og/eða æft með landsliði.
Vinsamlegast sendið útnefningar á mos[hjá]mos.is fyrir 18. desember 2015.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson íþróttafulltrúi Mosfellsbæjar í síma 660-0750.
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar