Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2017-18 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2017-18 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2017 fer fram frá 1. mars til 17. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu. Innritun í frístundasel og mötuneyti vegna skólaársins 2017-18 verður auglýst sérstaklega.
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem sækja skóla í öðrum sveitarfélögum, skal berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl.
Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa.
Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita ritarar grunnskólanna. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.
– Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar