Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2018-19 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2018 fer fram frá 1. mars til 20. mars.
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2018-19 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2018 fer fram frá 1. mars til 20. mars.
Innritun í frístundasel og mötuneyti 6 ára barna og nýrra nemenda vegna skólaársins 2018-19 verður auglýst sérstaklega síðar.
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl. Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis
Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.
– Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar