Nú stendur til að þvo og sópa gangstéttar og götur bæjarins.Sjá tímasetningar. Til að það verði sem best gert þurfum við á ykkar aðstoð að halda. Bæjarbúar eru vinsamlegast beðnir að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götunum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur. Ennfremur eru bæjarbúar
Ágætu bæjarbúar.
Nú stendur til að þvo og sópa gangstéttar og götur bæjarins. Til að það verði sem best gert þurfum við á ykkar aðstoð að halda.
Bæjarbúar eru vinsamlegast beðnir að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götunum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur.
Ennfremur eru bæjarbúar hvattir til að hreinsa í kringum híbýli sín og fá aðstoð starfsmanna þjónustumiðstöðvar í síma 566 – 8450 til að fjarlægja bílhræ og stærri hluti.
Eftirtalda daga munu starfsmenn þjónustumiðstöðvar sjá um þvott og hreinsun á götum og gangstéttum í hverfunum:
21. maí – Reykja og Krikahverfi
22. maí – Teiga- og Helgafellshverfi
23. maí – Holtahverfi
24. maí – Tangahverfi
27. maí – Hlíða- og Hlíðartúnshverfi
28. maí – Höfðahverfi
29. maí – Leirvogstunga
Gleðilegt sumar
Umhverfissvið Mosfellsbæjar