Vegna framkvæmda við gerð hringtorgs við gatnamót Skeiðholts og Þverholts vill Mosfellsbær koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: Hafin verður vinna við gerð hjáleiða á svæðinu um miðjan apríl. Í lok apríl verða opnaðar hjáleiðir fyrir alla umferð um svæðið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Vegna framkvæmda við gerð hringtorgs við gatnamót Skeiðholts og Þverholts vill Mosfellsbær koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:
Hafin verður vinna við gerð hjáleiða á svæðinu um miðjan apríl. Í lok apríl verða opnaðar hjáleiðir fyrir alla umferð um svæðið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Röskun mun verða á umferð um Skeiðholt í átt að Þverholti á meðan verið er að tengja hana við hjáleiðina.
Endanleg opnun á nýjum veg og hringtorgi er áætluð 12.júní 2015