Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
6. mars 2020

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: „Helga­dals­veg­ur í Mos­fells­dal, Jarð­vinna og veit­ur“.

    Um­hverf­is­svið Mos­fells­bæj­ar ósk­ar eft­ir til­boð­um í verk­ið: „Helga­dals­veg­ur í Mos­fells­dal, Jarð­vinna og veit­ur“.

    Mos­fells­bær, hér eft­ir nefnd­ur verk­kaupi, ósk­ar eft­ir til­boð­um lög­að­ila í jarð­vinnu- og veitu­verk­efni við lóð­ir við Helga­dals­veg. Verk­efn­ið fel­ur í sér að grafa skurði fyr­ir vatns­veitu­lagn­ir, hita­veitu­lagn­ir, raflagn­ir og fjöl­pípurör eins og teikn­ing­ar sýna. Í skurð­ina skal verktaki sanda und­ir og yfir rör, leggja lagn­ir, fylla yfir og ganga frá. Innifal­ið í verk­inu er öll lagn­ing veitna og jarð­vinna við fyr­ir­hug­aða lagn­ingu veitna.

    Helstu magn­töl­ur eru:

    • Gröft­ur fyr­ir veitu­lögn­um – um 1345m³
    • Fyll­ing­ar – um 1340m³
    • Kalda­vatns­lagn­ir – um 550m
    • Hita­veitu­lagn­ir – um 850m
    • Raflagn­ir – um 990m
    • Fjar­skipta­lagn­ir – um 350m

    Verk­inu skal að fullu lok­ið 1. sept­em­ber 2020.

    Út­boðs­gögn verða af­hent í af­greiðslu bæj­ar­skrif­stofu Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 2. hæð frá og með klukk­an 10:00 á þriðju­deg­in­um 10. mars 2020. Til­boð­um skal skilað á sama stað, bæj­ar­skrif­stof­ur Mos­fells­bæj­ar, eigi síð­ar en föstu­dag­inn 3. apríl 2020 kl.11:00 og þau opn­uð að við­stödd­um þeim bjóð­end­um sem þess óska.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-12:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-13:00