Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
8. maí 2010

    HeilsuhátíðHeilsu­há­tíð Mos­fells­bæj­ar fer fram við Íþróttamið­stöð­ina­að Varmá í dag kl. 12-14 og er loka­hnykk­ur­inn á Heilsu­viku Mos­fells­bæj­ar­sem stað­ið hef­ur yfir frá því á mánu­dag und­ir yf­ir­skrift­inni “Förum­heil­brigð inn í sum­ar­ið”.

    HeilsuhátíðHeilsu­há­tíð Mos­fells­bæj­ar fer fram við Íþróttamið­stöð­ina að Varmá í dag kl. 12-14 og er loka­hnykk­ur­inn á Heilsu­viku Mos­fells­bæj­ar sem stað­ið hef­ur yfir frá því á mánu­dag und­ir yf­ir­skrift­inni “För­um heil­brigð inn í sum­ar­ið”.

    Dag­skrá­in við Varmá í dag er fjöl­breytt og við allra hæfi. Leik­skóla­hlaup­ið, heilsu­hlaup­ið, heilsu­tengd­ar kynn­ing­ar og margt fleira. Frítt er í sund­laug­ina að Varmá kl. 10-15 í dag í til­efni heilsu­há­tíð­ar­inn­ar. Einn­ig verð­ur Aft­ur­eld­ing með flóa­markað kl 12.10-17 í vall­ar­hús­inu að Varmá.

    Vik­an 3. maí til 8. maí verð­ur heilsu­vika í Mos­fells­bæ. Mos­fell­ing­ar eru­af því til­efni hvatt­ir til að nota tæki­fær­ið og skerpa á heil­brigð­um­lífs­hátt­um sín­um. Heilsu­vika í Mos­fells­bæ er til­val­ið tæki­færi til þessað setja af stað eitt alls­herj­ar fjöl­skyldu­átak þar sem all­ir taka­hönd­um sam­an í eina viku og neyta hollr­ar fæðu og stunda úti­vist og­hreyf­ingu og fara þann­ig sam­an heil­brigð inn í sum­ar­ið.

    Dagskrá Heilsu­viku:

    3.-8. maí: Fella­þrenna
    All­ir geta far­ið á eitt, tvö eða þrjú fell í ná­grenni­Mos­fells­bæj­ar: Helga­fell, Úlfars­fell og Reykja­fell og sótt þar miða semer í boxi hjá app­el­sínu­gulri veifu, skráð nafn sitt á mið­ann og skilað íí­þrótta­hús­ið að Varmá. Út­drátt­ar­verð­laun – 3 heppn­ir fellafar­ar fá­vinn­ing. Sjá­kort

    Heilsu­dag­ur­inn 8. maí: Heilsu­tengd skemmti­dagskrá verð­ur íÍ­þróttamið­stöð­inni að Varmá milli 12:00 – 14:00
    Frítt í sund fyr­ir alla í Varmár­laug kl. 10:00-15:00
    Hoppu­kastali fyr­ir börn­in.

    Fjöl­skyldu- og skemmti­hlaup fyr­ir  unga og aldna.
    Tíma­setn­ing á hlaupi:
    12:00    Leik­skóla­hlaup einn hring­ur á íþrótta­vell­in­um. Fíg­úr­ur frá­Leik­fé­lagi Mos­fells­sveit­ar leiða hlaup­ið. Að hlaup­inu loknu fá öll börn­verð­launa­pen­ing
    12:30    Ræst af stað frá íþrótta­vell­in­um í 3 KM og 5 KM hlaup/göngu
    All­ir fá verð­launa­pen­ing að hlaupi loknu.

    Heilsu­tengd­ar kynn­ing­ar á heilsu­há­tíð­inni 8. maí:
    Him­nesk holl­usta
    – Heilsug­úrú­inn Sól­veig Ei­ríks­dótt­ir, Solla,sem rek­ur heilsu­fyr­ir­tæk­ið Him­neska holl­ustu, verð­ur með ýmis kon­ar­fróð­leik um holl­ustu og heil­brigt mataræði og miðl­ar af þekk­ingu sinni ímat­reiðslu og neyslu græn­met­is­fæð­is.
    Ráð­gjöf um mataræði
    – Guð­rún Adólfs­dótt­ir­mat­væla­fræð­ing­ur frá Sýni verð­ur á staðn­um milli kl. 12 og 14 og svararöll­um spurn­ing­um er tengjast nær­ingu – mun­ið að all­ar spurn­ing­ar eru­leyfð­ar.
    Blóð­þrýst­ings­mæl­ing­ar og hæð­ar­mæl­ing­ar
    -Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur frá Heilsu­gæsl­unni verð­ur á staðn­um og býð­ur upp áblóð­þrýst­ings­mæl­ing­ar fyr­ir þá sem þess óska og hæð­ar­mæl­ing­ar og fleira­skemmti­legt fyr­ir börn­in.
    Bein­vernd – Bein­þéttni­mæl­ing­ar
    – Full­trúi frá­Bein­vernd, lands­sam­taka áhuga­fólks um bein­þynn­ingu, mæl­ir bein­þéttni íþeim sem þess óska, en mæl­ing á bein­þéttni er mik­il­væg­ur þátt­ur eð­avís­bend­ing sem seg­ir til um hætt­una á því að brotna af völdum­bein­þynn­ing­ar.

    Mos­fell­ing­ar eru hvatt­ir til að taka þátt í heilsu­vik­unni og­sýna og sanna að Mos­fells­bær er sann­kall­að­ur heilsu­bær.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00