Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt að framvegis verði grunnskólabörnum í Mosfellsbæ veittur nauðsynlegur hluti námsgagna, þeim að kostnaðarlausu.
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt að framvegis verði grunnskólabörnum í Mosfellsbæ veittur nauðsynlegur hluti námsgagna, þeim að kostnaðarlausu. Það felur í sér að sveitarfélagið leggur til nauðsynleg ritföng sem keypt verða í gegnum örútboð Ríkiskaupa. Gert er ráð fyrir að um 1650 nemendur hefji nám í grunnskólum Mosfellsbæjar nú í haust og að áætlaður kostnaður við sameiginleg innkaup verði um 8,3 milljónir króna.
Stuðlar að jafnræði til náms
Mosfellsbær er fjölskylduvænt og framsækið bæjarfélag sem hugar að velferð og þjónustu við íbúa sína. Gjaldfrjálst skyldunám stuðlar að jafnræði til náms óháð efnahag og endurspeglar einnig ákvæði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um að ekki megi mismuna börnum meðal annars vegna félagslegrar stöðu eða stöðu foreldra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mosfellsbæ.
Lækkun útgjalda fyrir barnafjölskyldur
„Ég styð heilshugar að stuðlað sé að hagkvæmari innkaupum þegar kemur að námsgögnum og öðrum búnaði sem er notaður í starfsemi Mosfellsbæjar,“ segir Haraldur Sverrison bæjarstjóri. Þessi ráðstöfun skilar sér í lækkun útgjalda fyrir barnafjölskyldur í bænum og kemur sér eflaust vel á mörgum stöðum.“