Almannavarnir biðja alla foreldra að fylgjast með veðurspá morgundagsins fimmtudagsins 7. mars 2013. Gert er ráð fyrir slæmu veðri en á vef Veðurstofu Íslands er eftirfarandi viðvörun nú kl. 14:00. Búist er við stormi eða roki (meðalvindhraða meiri en 23 m/s) S- og V-til á landinu í dag og syðst á landinu á morgun. Gildir til 07.03.2013
Foreldrar meta hvort þeir senda börn sín í skóla. Skólinn verður opinn skv. viðbúnaðarstigi 1 nema annað verði tilkynnt í fjölmiðlum.