Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
15. október 2015

    Mynd­list­ar­sýn­ing­in Frumdrætt­ir og fyr­ir­mynd­ir verð­ur opn­uð í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar í húsa­kynn­um Bóka­safns Mos­fells­bæj­ar í Kjarn­an­um, Þver­holti 2, Mos­fells­bæ laug­ar­dag­inn 17. okt. 2015 kl. 15.00. Sýn­ing­ar­heit­ið vís­ar til teikn­ing­ar­inn­ar sem tján­ing­ar­mið­ils. Sýn­ing­in er sam­starfs­verk­efni og stefnumót lista­mann­anna Guð­bjarg­ar Lind­ar, Jean Lar­son, Krist­ín­ar Geirs­dótt­ir og Ólaf­ar Odd­geirs­dótt­ur. Við­fangs­efni og hug­mynda­leg nálg­un lista­mann­anna eru ólík en verkin á sýn­ing­unni eiga það sam­eig­in­legt að í þeim eru kann­að­ir og nýtt­ir mögu­leik­ar teikn­ing­ar­inn­ar.

    Mynd­list­ar­sýn­ing­in Frumdrætt­ir og fyr­ir­mynd­ir verð­ur opn­uð í Lista­sal Mos­fells­bæj­ar í húsa­kynn­um Bóka­safns Mos­fells­bæj­ar í Kjarn­an­um, Þver­holti 2, Mos­fells­bæ laug­ar­dag­inn 17. okt. 2015 kl. 15.00. 

    Sýn­ing­ar­heit­ið vís­ar til teikn­ing­ar­inn­ar sem tján­ing­ar­mið­ils. Sýn­ing­in er sam­starfs­verk­efni og stefnumót lista­mann­anna Guð­bjarg­ar Lind­ar, Jean Lar­son, Krist­ín­ar Geirs­dótt­ir og Ólaf­ar Odd­geirs­dótt­ur. Við­fangs­efni og hug­mynda­leg nálg­un lista­mann­anna eru ólík en verkin á sýn­ing­unni eiga það sam­eig­in­legt að í þeim eru kann­að­ir og nýtt­ir mögu­leik­ar teikn­ing­ar­inn­ar.

    Lista­menn­irn­ir eiga að baki lang­an og fjöl­breytt­an fer­il, fjölda einka- og sam­sýn­inga bæði hér heima og er­lend­is. Guð­björg, Kristín og Ólöf hafa oft unn­ið sam­an en þetta er í fyrsta sinn sem Jean Lar­son kem­ur til liðs við þær. Jean er frá Michigan í Banda­ríkj­un­um og er mik­ill heims­hornaflakk­ari. Hún hef­ur um nokk­urt skeið dval­ið á Ís­landi og á nú at­hvarf á Flat­eyri þar sem hún hef­ur unn­ið verkin fyr­ir þessa sýn­ingu. 

    Á Degi mynd­list­ar 31. októ­ber verð­ur boð­ið upp á lista­manna­spjall kl 15.00 .

    Sýn­ing­in er opin á af­greiðslu­tíma Bóka­safns­ins:

    Mánu­daga og þriðju­daga frá kl 12.00 – 18.00
    Mið­viku­daga frá kl. 10.00 – 18.00
    Fimmtu­daga og föstu­daga frá kl. 12.00 – 18.00
    Laug­ar­daga kl 13.00 – 17.00

    Sýn­ing­unni lýk­ur 7. nóv.

    Opnun listsýningar - Frumdrættir og fyrirmyndir

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00