Börn fædd á árunum 2002 til 2013 eiga rétt á frístundaávísun á frístundatímabilinu 15. ágúst 2019 til 31.maí 2020. Það er að segja börn sem eru að hefja nám í fyrsta bekk grunnskóla og verða 6 ára á árinu til og með unglinga á öðru ári í framhaldsskóla sem verða 18 ára á árinu.
Börn fædd á árunum 2002 til 2013 eiga rétt á frístundaávísun á frístundatímabilinu 15. ágúst 2019 til 31.maí 2020. Það er að segja börn sem eru að hefja nám í fyrsta bekk grunnskóla og verða 6 ára á árinu til og með unglinga á öðru ári í framhaldsskóla sem verða 18 ára á árinu. Sé barn orðið 18 ára sækir það sjálft um á íbúagáttinni. Athugið að aðeins börn með lögheimili í Mosfellsbæ fá valmöguleika um að nýta frístundaávísun hjá Mosfellsbæ.
Frístundaávísun 2019-2020 er 50.000 kr. en hækkar fyrir þriðja barn upp í 60.000, einnig fyrir fjórða og fimmta barn o.s.frv.. Þetta á við um fjölskyldur sem skráð eru með sama lögheimili og fjölskyldunúmer.