Viðgerð á hitaveituæð meðfram Þingvallavegi í Mosfellsdal sem fara átti fram í dag á milli kl. 13:00-15:00 hefur verið frestað.
Vegna viðgerðar á hitaveituæð meðfram Þingvallavegi í Mosfellsdal þarf að loka fyrir heitt vatn á milli kl. 13:00-15:00 fimmtudaginn 3. febrúar.
Einhverjar truflanir gætu orðið á afhendingu á heitu vatni í efri hluta Mosfellsdals meðan á viðgerð stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.