Um 1487 Mosfellskar konur tóku þátt í Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ sem fór fram í tuttugasta og fjórða sinn, laugardaginn 8. júní. Góð þátttaka var í hlaupinu. Um 14.000 konur tóku þátt á 81 stað út um allt land og á um 17 stöðum í 11 löndum erlendis. Um 4500 konur hlupu í Garðabænum, 1487 í Mosfellsbæ, 650 á Akureyri og um 500 konur erlendis.
Um 1487 Mosfellskar konur tóku þátt í Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ sem fór fram í tuttugasta og fjórða sinn, laugardaginn 8. júní. Góð þátttaka var í hlaupinu. Um 14.000 konur tóku þátt á 81 stað út um allt land og á um 17 stöðum í 11 löndum erlendis. Um 4500 konur hlupu í Garðabænum, 1487 í Mosfellsbæ, 650 á Akureyri og um 500 konur erlendis. Boðið var upp á mismunandi vegalengdir allt frá 2 km upp í 10 km. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum þar sem ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hreyfðu sig og skemmtu sér saman.
Þú getur skoðað myndir úr hlaupi Sjóvá/ Kvennahlaupi ÍSÍ í Mosfellsbæ hér á vef Sjóvá.