Lágafellsskóli og Varmárskóli verða settir mánudaginn 25. ágúst. Umsóknir vegna frístundaselja og mötuneyta verða að hafa borist í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 20. ágúst. Upplýsingar um tímasetningar varðandi skólabyrjun, innkaupalista og skóladagatal skólaársins 2014-15 má finna á heimasíðum skólanna.
Lágafellsskóli og Varmárskóli verða settir mánudaginn 25. ágúst.
Umsóknir vegna frístundaselja og mötuneyta verða að hafa borist í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 20. ágúst.
Upplýsingar um tímasetningar varðandi skólabyrjun, innkaupalista og skóladagatal skólaársins 2014-15 má finna á heimasíðum skólanna.
Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) verður hleypt af stokkunum í áttunda sinn 10. september næstkomandi og lýkur því formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 8. október. Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskautar og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.
Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt en fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en 64 skólar skráður sig til leiks Nánari upplýsingar um virkan ferðamáta og umferðarfræðslu má m.a. finna í Handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla, sem Embætti landlæknis gefur út og í Handbók í umferðarfræðslu sem Samgöngustofa gefur út. Hægt er að nálgast bækurnar rafrænt á síðunum www.umferd.is og www.landlaeknir.is.
Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar. Þar má m.a. finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu. Einnig er hægt að hafa samband við Sigríði Ingu Viggósdóttur, sviðsstjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 5144000 eða á netfangið sigridur[hja]isi.is. 2013.
Tökum þátt