Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
10. apríl 2019

    Nú stend­ur til að þvo og sópa gang­stétt­ar og göt­ur bæj­ar­ins. Síð­ustu daga hef­ur Hreins­un­ar­tækni ver­ið að for­hreinsa göt­ur í bæj­ar­fé­lag­inu.

    Nú stend­ur til að þvo og sópa gang­stétt­ar og göt­ur bæj­ar­ins. Síð­ustu daga hef­ur Hreins­un­ar­tækni ver­ið að for­hreinsa göt­ur í bæj­ar­fé­lag­inu. Vinna hófst á hreins­un með vatns­bíl ásamt stór­um og litl­um sóp­um í Reykja- og Krika­hverfi þriðju­dag­inn 9. apríl en stefnt er á að klára öll hverfi fyr­ir páska.

    Til að ná sem best­um ár­angri í göt­us­hreins­un þurf­um við á að­stoð íbúa að halda. Bæj­ar­bú­ar eru vin­sam­leg­ast beðn­ir að leggja ekki öku­tækj­um eða öðr­um far­ar­tækj­um á göt­un­um eða gang­stétt­um eft­ir­talda daga í við­kom­andi göt­um og hverf­um með­an á hreins­un stend­ur.

    Enn frem­ur eru bæj­ar­bú­ar hvatt­ir til að hreinsa í kring­um hí­býli sín og fá að­stoð starfs­manna þjón­ustu­stöðv­ar í síma 525-6700 til að fjar­lægja bíl­hræ og stærri hluti.

    Eft­ir­talda daga verða gang­stétt­ar og göt­ur þvegn­ar og sóp­að­ar:

    • 9. apríl – Reykja- og Krika­hverfi.
    • 10. apríl – Teiga- og Helga­fells­hverfi.
    • 11. apríl – Holta­hverfi.
    • 12. apríl – Tanga­hverfi.
    • 15. apríl – Hlíða- og Hlíð­ar­túns­hverfi.
    • 16. apríl – Höfða­hverfi.
    • 17. apríl – Leir­vogstungu­hverfi.

     

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00