Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings. Samkvæmt reglum Mosfellsbæjar um sérstakar húsaleigubætur skal endurnýja umsóknir um sérstakar húsaleigubætur samhliða almennum húsaleigubótum, gildir umsókn aldrei lengur en sex mánuði og eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Reglur vegna sérstakra húsaleigubóta er hægt að nálgast á mos.is/samþykktir og reglur/húsaleigubætur sérstakar.
Umsækjendur um almennar og sérstakar húsaleigubætur í Mosfellsbæ eru minntir á að skila umsókn og fylgiskjölum fyrir árið 2012 á www.mos.is/íbúagátt eða í þjónustuver Mosfellsbæjar, Þverholti 2 í síðasta lagi 15. janúar 2012.
Húsnæðisfulltrúi Mosfellsbæjar