Í tilefni af Degi tónlistaskólanna bjóða söngnemendur Listaskólans í Mosfellsbæ upp á tónleika með lögum Jóns Múla Árnasonar í Safnaðarheimili Lágafellssóknar við Þverholt laugardaginn 26. febrúar klukkan 14:00.

Flutt verða mörg af fallegustu lögum Jóns Múla eins og Í hjarta þér, Án þín, Augun þín blá og Einu sinni á ágústkvöldi.
Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Aðgangur ókeypis!