Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu
Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, hlutverk og gildi hans í samfélaginu. Í tilefni af deginum var bæjarstjóra afhent veggspjald með „Bestu gullkornum“ frá leikskólabörnum þegar hann heimsótti börn og starfsfólk Reykjakots í morgun.