Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
6. maí 2010

    Heilsuhátíð í MosfellsbæÍ kvöld verð­ur hald­in brennókeppni á sparkvell­in­um við Lága­fells­skóla sem lið­ur í Heilsu­viku Mos­fells­bæj­ar. Mark­mið­ið er að all­ir skemmti sér og hafi gam­an af og hreyfi sig svo­lít­ið í leið­inni. Heilsu­há­tið verð­ur hald­in að Varmá kl. 12-14 á laug­ar­dag.

    Heilsuhátíð í MosfellsbæÍ kvöld verð­ur hald­in brennókeppni á sparkvell­in­um við Lága­fells­skóla­sem lið­ur í heilsu­vik­unni. Mark­mið­ið er að all­ir skemmti sér og hafigam­an af og hreyfi sig svo­lít­ið í leið­inni.

    Heilsu­vika Mos­fells­bæj­ar stend­ur frá 3.-8. maí og fer fram und­ir yf­ir­skrift­inni “För­um heil­brigð inn í sum­ar­ið”. Heilsu­vik­unni lýk­ur laug­ar­dag­inn 8. maí með heil­mik­illi heilsu­há­tíð við Íþróttamið­stöð­ina að Varmá.

    Vik­an 3. maí til 8. maí verð­ur heilsu­vika í Mos­fells­bæ. Mos­fell­ing­ar eru af því til­efni hvatt­ir til að nota tæki­fær­ið og skerpa á heil­brigð­um lífs­hátt­um sín­um. Heilsu­vika í Mos­fells­bæ er til­val­ið tæki­færi til þess að setja af stað eitt alls­herj­ar fjöl­skyldu­átak þar sem all­ir taka hönd­um sam­an í eina viku og neyta hollr­ar fæðu og stunda úti­vist og hreyf­ingu og fara þann­ig sam­an heil­brigð inn í sum­ar­ið.

    Heilsu­vik­unni lýk­ur á laug­ar­dag­inn með heil­mik­illi heilsu­há­tíð við Íþróttamið­stöð­ina að Varmá. Há­tíð­in stend­ur milli kl. 12 og 14. Keppt verð­ur í heilsu­hlaup­inu, sem er 3 eða 5 km hlaup fyr­ir alla ald­urs­hópa og styttra hlaup fyr­ir börn­in. Öll börn sem taka þátt fá verð­launa­pen­ing.  Frítt verð­ur í sund fyr­ir alla í Varmár­laug kl. 10:00-15:00.

    Heilsu­tengd­ar kynn­ing­ar á heilsu­há­tíð­inni 8. maí:
    Him­nesk holl­usta – Heilsug­úrú­inn Sól­veig Ei­ríks­dótt­ir, Solla, sem rek­ur heilsu­fyr­ir­tæk­ið Him­neska holl­ustu, verð­ur með ýmis kon­ar fróð­leik um holl­ustu og heil­brigt mataræði og miðl­ar af þekk­ingu sinni í mat­reiðslu og neyslu græn­met­is­fæð­is.
    Ráð­gjöf um mataræði – Guð­rún Adólfs­dótt­ir mat­væla­fræð­ing­ur frá Sýni verð­ur á staðn­um milli kl. 12 og 14 og svar­ar öll­um spurn­ing­um er tengjast nær­ingu – mun­ið að all­ar spurn­ing­ar eru leyfð­ar.
    Blóð­þrýst­ings­mæl­ing­ar og hæð­ar­mæl­ing­ar – Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur frá Heilsu­gæsl­unni verð­ur á staðn­um og býð­ur upp á blóð­þrýst­ings­mæl­ing­ar fyr­ir þá sem þess óska og hæð­ar­mæl­ing­ar og fleira skemmti­legt fyr­ir börn­in.
    Bein­vernd – Bein­þéttni­mæl­ing­ar – Full­trúi frá Bein­vernd, lands­sam­taka áhuga­fólks um bein­þynn­ingu, mæl­ir bein­þéttni í þeim sem þess óska, en mæl­ing á bein­þéttni er mik­il­væg­ur þátt­ur eða vís­bend­ing sem seg­ir til um hætt­una á því að brotna af völd­um bein­þynn­ing­ar.
    Einka­þjálf­ari veit­ir ráð­gjöf – María Ögn Guð­munds­dótt­ir, einka­þjálf­ari og sál­fræð­ing­ur sem rek­ur Heilsu­kvos­ina, veit­ir ráð­gjöf um þjálf­un og heilsu­ræktæ.

    Knatt­spyrnu­deild Aft­ur­eld­ing­ar verð­ur jafn­framt með sinn víð­fræga flóa­markað í vall­ar­hús­inu að Varmár­velli á laug­ar­dag kl. 12:30-17. Nýtt og notað á hlægi­legu verði, veit­inga­sala, vörukynn­ing­ar og ým­is­legt til skemmt­un­ar.

    Sjá nán­ar um Heilsu­viku Mos­fells­bæj­ar

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00