Í kvöld, fimmtudaginn 23. febrúar, verður sannkölluð blúsveisla hér í Mosfellbænum. Blásið er til stórtónleika á veitingahúsinu Hvíta Riddaranum kl 21 en þar mun Andrea Gylfadóttir koma fram ásamt hlljómsveitinni, Future Blues Project.
Tónleikarnir eru haldnir í fjáröflunarskyni fyrir Knattspyrnudeild Aftureldingar og verða að teljast hvalreki fyrir unnendur blússins enda er sennilega enginn fremri Andreu að túlka og syngja blús.
Í hljómsveit Andreu spila gítarleikarinn Jóhann Jón Ísleifsson (Jonni) sem búið hefur í Mosfellsbænum um árabil, Haraldur Gunnlaugsson gítaleikari, trommuleikarinn Haukur “The Hawk” Hafsteinsson og Brynjar Már Karlsson á bassa. “Þetta er í fyrsta skipti sem við í bandinu mætum með dívuna Andrea hingað í Mosfellsbæinn” segir Jonni. “Við höfum farið víða með tónleika okkar og m.a. til Chicago í vöggu blúsins. Það verður því mjög gaman að spila með þessum listamönnum á heimaslóðum og við lofum léttum og skemmtilegum tónleikum þar sem við munu fara víða um í straumum og stefnum blússins. Maður þarf alls ekki að vera einhver blúsgeggjari til að njóta, þessi tónlist mun henta öllum og koma fólki í góðan gír fyrir helgina.“
Afturelding hvetur allra til að mæta á þennan merka menningarviðburð og eiga eftirminnilega kvöldstund með til styrktar góðu málefni.