Mosfellsbær er, ásamt Garðabæ, besta sveitarfélagið til að búa í að mati íbúa og hvergi er meiri ánægja með skipulagsmál. Þetta kemur fram í könnun Capacent þar sem mæld var ánægja með þjónustu sveitarfélaga.
Mosfellsbær er, ásamt Garðabæ, besta sveitarfélagið til að búa í að mati íbúa og hvergi er meiri ánægja með skipulagsmál. Þetta kemur fram í könnun Capacent þar sem mæld var ánægja með þjónustu sveitarfélaga.
Alls eru 92% íbúa í Mosfellsbæ ánægð með Mosfellsbæ sem stað til að búa á og fær Mosfellsbær einkunnina 4,5 af 5 mögulegum, sem er hæsta einkunn sem íbúar gáfu sveitarfélagi sínu. Til samanburðar gáfu íbúar í Reykjanesbæ sínu sveitarfélaginu einkunnina 3,8 sem er lakasta einkunnin í mælingunni í ár.
Þetta er í þriðja sinn sem könnunin er gerð. Mosfellsbær er eitt fjögurra sveitarfélaga af 16 sem hækkar í einkunn milli ára. Einkunn flestra sveitarfélaga standa í stað eða lækka milli ára.
Hvergi á landinu er meiri ánægja með skipulagsmál en í Mosfellsbæ. Aðeins Vestmannaeyingar eru ánægðari en Mosfellingar með þjónustu til íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu og einungis Ísfirðingar eru ánægðari með menningarmál en Mosfellingar í sínu bæjarfélagi.
Mosfellsbær kemur almennt mjög vel út í flestöllum spurningum. Í aðeins tveimur sveitarfélögum er meiri ánægja með leikskóla en í Mosfellsbæ og ánægja með grunnskóla Mosfelslbæjar hefur aukist talsvert milli ára og raðast Mosfellsbær í sjötta sæti í þeirri spurningu.
Samkvæmt könnuninni stendur Mosfellsbær sig síst í að sinna þjónustu við eldri borgara þar sem Mosfellsbær raðast fyrir neðan miðju miðað við önnur sveitarfélög.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segist afar ánægður með útkomuna. „Það er gaman að sjá hvað Mosfellingar eru ánægðir með bæinn sinn. Hér er frábært að búa eins og sést á niðurstöðum könnunarinnar.“
Hann segir það ánægjulegt að Mosfellsbær hefur hækkað í einkunn síðustu tvö ár og að það sé staðfesting á þeim áherslum sem unnið sé eftir hér í sveitarfélaginu.
„Við komum ekki nógu vel út varðandi þjónustu við eldri borgara en það kemur ekki á óvart. Við höfum barist fyrir því í mörg ár að fá hér byggt hjúkrunarheimili sem nú loksins er orðið að veruleika. Í tengslum við hjúkrunarheimili verður byggð aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra sem lengi hefur mátt bæta,“ segir Haraldur ennfremur.
Skýrsla Capacent (.pdf 2,42MB)