Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka, eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings. Samkvæmt reglum Mosfellsbæjar um sérstakar húsaleigubætur skal endurnýja umsóknir um sérstakar húsaleigubætur samhliða almennum húsaleigubótum, gildir umsókn aldrei lengur en sex mánuði og/eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka, eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Samkvæmt reglum Mosfellsbæjar um sérstakar húsaleigubætur skal endurnýja umsóknir um sérstakar húsaleigubætur samhliða almennum húsaleigubótum, gildir umsókn aldrei lengur en sex mánuði og/eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Reglur vegna sérstakra húsaleigubóta er hægt að nálgast á vef Mosfellsbæjar undir www.mos.is/samthykktirogreglur
Umsækjendur um almennar og sérstakar húsaleigubætur í Mosfellsbæ eru minntir á að skila umsókn fyrir árið 2011 á www.mos.is/íbúagátt. og/eða í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2 í síðasta lagi 17. janúar næstkomandi.
Húsnæðisfulltrúi Mosfellsbæjar