Áramótabrenna verður staðsett neðan Holtahverfis við Leirvog. Kveikt verður í brennunni kl. 20:30.
Munið að öll meðferð skotelda á svæðinu er bönnuð, stjörnuljós og blys eru hættuminni en flugeldar og tertur skulu geymast heima fyrir.
Bæjarbúar eru hvattir til að ganga vel um og fjarlægja flugeldarusl.
Hugum að dýrunum okkar
Matvælastofnun minnir dýraeigendur á að huga vel að dýrum sínumr á meðan á flugeldaskotum stendur. Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta þau valdið slysum á sjálfum sér og öðrum við slíkar aðstæður. Hægt er að fyrirbyggja slys með því að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana fyrir gamlárskvöld og þrettándann. Dýraeigendur, sérstaklega þeir sem eiga hunda, ketti og hesta, kannast vel við þann óróa og angist sem dýr þeirra ganga í gegnum á þessum tíma vegna látanna sem fylgir flugeldaskotum.