Þann 26. júní samþykkti Bæjarstjórn tillögu að aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030, og bíður hún nú staðfestingar Skipulagsstofnunar.
Þann 26. júní 2013 samþykkti Bæjarstjórn Mosfellsbæjar tillögu að Aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030, sem auglýst var skv. 31. gr. skipulagslaga ásamt umhverfisskýrslu þann 15. febrúar 2013 með athugasemdafresti til 2. apríl 2013.
Alls bárust 37 athugasemdir við tillöguna á kynningartímanum, að meðtöldum umsögnum stofnana um umhverfisskýrslu. Umsagnir skipulagsnefndar um athugasemdirnar voru samþykktar í Bæjarstjórn 12. júní 2013. Jafnframt var samþykkt að gera nokkrar minniháttar breytingar á skipulaginu vegna athugasemdanna.
Umsagnirnar hafa verið sendar þeim sem athugasemdir gerðu. Ágrip af efni athugasemda og umsagnirnar eru aðgengileg hér á heimasíðunni:
Athugasemdir og svör, pdf-skjal
Aðalskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun til staðfestingar sbr. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga. Þeim sem óska eftir frekari upplýsingum um aðalskipulagið og afgreiðslu þess er bent á að snúa sér til undirritaðs.
9. júlí 2013
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar