Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
5. apríl 2017

    Árs­reikn­ing­ur Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2016 var lagð­ur fram í bæj­ar­ráði í dag og jafn­framt tekin til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn.

    Árs­reikn­ing­ur Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2016 var lagð­ur fram í bæj­ar­ráði í dag og jafn­framt tekin til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn.

    Tekj­ur árs­ins námu alls 9.105 millj­ón­um, launa­kostn­að­ur 4.151 millj­ón­um og ann­ar rekstr­ar-kostn­að­ur 3.640 millj­ón­um. Fram­legð nem­ur því 1.314 millj­ón­um en að teknu til­liti til fjár­magnsliða er rekstr­araf­gang­ur A og B hluta 380 millj­ón­ir. Rekstr­arnið­ur­staða án fjár­magnsliða nam 977 millj­ón­um eða tæp­lega 11% af tekj­um.

    Veltufé frá rekstri er 1.109 millj­ón­ir eða rúm­lega 12% af tekj­um. Eig­ið fé í árslok nam 4.681 millj­ón­um og eig­in­fjár­hlut­fall 29,4%. Skulda­við­mið er 108,5% sem er vel inn­an þess 150% há­marks sem kveð­ið er á um í lög­um.

    Rekstr­arnið­ur­staða A og B hluta er tals­vert betri en gert var ráð fyr­ir í fjár­hags­áætlun árs­ins. Það má helst skýra með hærri óreglu­leg­um tekj­um vegna lóða­sölu og bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld­um og lægra verð­lagi en gert var ráð fyr­ir, sem hef­ur áhrif á fjár­magnsliði.

    Framund­an er áfram­hald­andi upp­bygg­ing inn­viða í Mos­fells­bæ. Á síð­ustu árum hef­ur ver­ið ver­ið lögð áhersla á upp­bygg­ingu fram­halds­skóla, íþrótta­hús, hjúkr­un­ar­heim­ili og stór­bætt að­staða fyr­ir fé­lags­st­arf eldri borg­ara. Stærsta verk­efn­ið sem sveit­ar­fé­lag­ið hef­ur með hönd­um nú er bygg­ing Helga­fells­skóla. Það er leik- og grunn­skóli í ný­bygg­ing­ar­hverfi í hraðri upp­bygg­ingu sem áætlað er að muni kosta um 3500 millj­ón­ir á næstu tíu árum.

    Skuldastaða sveit­ar­fé­lags­ins er vel við­un­andi mið­að við þá upp­bygg­ingu sem átt hef­ur sér stað á und­an­förn­um árum. Sú upp­bygg­ing er í sam­ræmi við markmið sveit­ar­fé­lags­ins um góða heild­stæða þjón­ustu við alla ald­urs­hópa og fjölg­un íbúa.

    Íbú­ar Mos­fells­bæj­ar voru 9.783 um síð­ustu ára­mót og hafði fjölgað um 3% á milli ára sem er í sam­ræmi við spár þar um. Gert er ráð fyr­ir að íbúa­fjöld­inn fari yfir 10 þús­und á þessu ári. Mos­fells­bær er sjö­unda fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins og þar störf­uðu 619 starfs­menn í 509 stöðu­gild­um á ár­inu 2016.

    Fjár­hags­staða Mos­fells­bæj­ar er traust og rekst­ur­inn ábyrg­ur. Fræðslu­mál eru lang­stærsti mála­flokk­ur­inn en til hans runnu 3.604 millj­ón­ir eða 51% skatt­tekna. Til fé­lags­þjón­ustu var veitt 1.382 millj­ón­um og eru þar með­talin mál­efni fatl­aðs fólks. Íþrótta- og tóm­stunda­mál eru þriðja stærsta verk­efni bæj­ar­ins en til þeirra mála var var­ið um 803 millj­ón­um. Sam­tals er því 82% skatt­tekna Mos­fells­bæj­ar var­ið til fræðslu-, fé­lags­þjón­ustu, íþrótta- og tóm­stunda­mála.

    Árs­reikn­ing­ur­inn verð­ur tek­inn til seinni um­ræðu í bæj­ar­stjórn þann 19. apríl 2017.

    Nán­ari upp­lýs­ing­ar veit­ir Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri í síma 525-6700.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-14:00