Mosfellingur ársins 2006
Hjalti tekur við nafnbótinni Mosfellingur ársins úr höndum Hilmars Gunnarssonar, ritstjóra Mosfellings.
Hjalti er einn mesti afreksmaður landsins í kraftlyftingum og hefur unnið til fjölda titla sem slíkur, bæði hérlendis sem og erlendis. Undanfarin ár hefur hann lagt metnað sinn í að skrásetja sögu eins þekktasta aflraunamanns Íslands, Jóns Páls Sigmarssonar. Heimildarmyndin Þetta er ekkert mál (2006) var ein mest sótta mynd ársins og var m.a. tilnefnd til Edduverðlaunanna. Sala myndarinnar á DVD fór í gullsölu sem er ótvírætt merki þess að myndin hafi fallið í góðan jarðveg. „Það er von mín að minningin um Jón Pál, þennan frábæra félaga og vin, gleymist aldrei”, sagði Hjalti.
Að lokum vildi Hjalti bæta við að sú nafnbót að vera Mosfellingur ársins væri sannur heiður: „Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig og heiður,” sagði Hjalti Úrsus Árnason.
Þetta er í annað sinn sem þessi heiðurstitill er veittur af bæjarblaðinu Mosfellingi.