Mosfellingur ársins 2008
Alli Rúts tekur við nafnbótinni Mosfellingur ársins úr höndum Hilmars Gunnarssonar, ritstjóra Mosfellings. Mosfellingur afhenti Alla glæsilegt listaverk eftir leirlistakonuna Þóru Sigurþórsdóttur auk blómaskreytingar frá Hlín Blómahús.
Á árinu opnaði Albert glæsilegt hótel í Mosfellsbæ, Hótel Laxnes. Alli Rúts, eins og hann er oftast kallaður er landskunnur skemmtikraftur og rak á árum áður eina þekktustu bílasölu landsins.
Hótel Laxnes er með glæsilegri byggingum í Mosfellsbæ en hótelið opnaði í byrjun septembermánaðar.