Ragnar Lárusson er fæddur að Brúarlandi í Mosfellssveit 1935, sonur skólastjórahjónanna þar, Kristínar Magnúsdóttur og Lárusar Halldórssonar.
Að loknu prófi frá Gagnfræðaskólanum á Akranesi, settist Ragnar á skólabekk í Handíða- og myndlistaskólanum þar sem hann stundaði nám í myndlistardeild í tvo vetur.
Ragnar nam gullsmíði hjá Vali Fannar, gullsmiði og hefur gripið til smíðinnar annað veifið og smíðað módelhluti úr silfri. Ragnar sótti einnig námskeið í litógrafíu hjá Braga Ásgeirssyni listmálara.
Ragnar hefur samið og teiknað sjö bækur fyrir börn, bækurnar um Mola litla flugustrák. Ragnar gerði fyrstu “hreyfimyndirnar” sem birtust í íslenska sjónvarpinu, þættina um Valla víking. Fyrir það frumherjastarf hlaut hann viðurkenningu Bókasafnasjóðs höfunda vorið 2002.
Ragnar hefur myndskreytt margar bækur annarra höfunda. Um tíma gaf hann einnig út skopblaðið Spegilinn ásamt Ása í Bæ. Fyrstu sýningu á verkum sínum hélt Ragnar í Ásmundarsal við Freyjugötu í Reykjavík árið 1956. Siðan hefur Ragnar haldið margar sýningar á verkum sínum hér á landi og eina erlendis.
Verk í eigu Mosfellsbæjar
Nafn listaverks: Mannamyndir, Ástar-Brandur. 1980
Efni – aðferð: Sáldþrykk
Stærð: 43.5×31 cm
Staðsetning: Bókasafn Mosfellsbæjar
Gjöf listamannsins til bókasafnsins haustið 1985.
Nafn listaverks: Mannamyndir. Guðmundur dúllari. 1980
Efni – aðferð: Sáldþrykk
Stærð: 43.5×31 cm
Staðsetning: Bókasafn Mosfellsbæjar
Gjöf listamannsins til bókasafnsins haustið 1985.
Nafn listaverks: Mannamyndir, Símon Dalaskáld. 1980
Efni – aðferð: Sáldþrykk
Stærð: 43.5×31 cm
Staðsetning: Bókasafn Mosfellsbæjar
Gjöf listamannsins til bókasafnsins haustið 1985.
Nafn listaverks: Mannamyndir, Sæfinnur með 16 skó. 1980
Efni – aðferð: Sáldþrykk
Stærð: 43.5×31 cm
Staðsetning: Bókasafn Mosfellsbæjar
Gjöf listamannsins til bókasafnsins haustið 1985.
Nafn listaverks: Frummynd af lágmynd sem er á minnisvarða
Lárusar Halldórssonar og Kristínar Magnúsdóttur. 1960
Efni – aðferð: Gifs
Stærð: 34×36 cm
Staðsetning: Kennarastofa Varmárskóla, yngri deild
Nafn listaverks: Hálfdán Helgason prestur á Mosfelli. 1956
Efni – aðferð: Pastellitir
Stærð: 64×50 cm
Staðsetning: Kennarastofa Varmárskóla, yngri deild
Gjöf frá Lárusi Halldórssyni skólastjóra.
Nafn listaverks: Skólastjórahjónin Lárus Halldórsson og Kristín Magnúsdóttir. 1985
Efni – aðferð: Lágmynd úr kopar á háum stöpli
Stærð: Lágmynd: 33.5×35.5 cm. Hæð stöpuls: 185 cm
Staðsetning: Við Varmárskóla, yngri deild.
Verkið er gjöf frá nemendum og vandamönnum þeirra hjóna. Minnisvarðinn var afhjúpaður 16. september 1985.
Nafn listaverks: Án titils. 1984-1985
Efni – aðferð: Olía á striga
Stærð: 90×110 cm
Staðsetning: Kjarni, 4.hæð
Gjöf frá listamanninum til bæjarins í tilefni stofnunar listaverkasjóðs á stofndegi Mosfellsbæjar þann 9. ágúst 1987.
Nafn listaverks: Án titils. 1988
Efni – aðferð: Gvasslitir
Stærð: 50×62 cm
Hvenær keypt: 1988 – Unnið sérstaklega fyrir Tónlistarskólann í Mosfellsbæ
Staðsetning: Tónlistarskóli Mosfellsbæjar
Nafn listaverks: Án titils. 1988
Efni – aðferð: Gvasslitir
Stærð: 50×65 cm
Hvenær keypt: 1988 – Unnið sérstaklega fyrir Tónlistarskólann í Mosfellsbæ
Staðsetning: Tónlistarskóli Mosfellsbæjar (eign skólans)
Nafn listaverks: Án titils. 1988
Efni – aðferð: Vatnslitir
Stærð: 42×60 cm
Staðsetning: Tónlistarskóli Mosfellsbæjar