Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Inga Elín Krist­ins­dótt­ir er fædd 1957. Hún stund­aði nám við Mynd­lista­skól­ann í Reykja­vík á ár­un­um 1972 til 1974, og síð­ar við Mynd­lista- og hand­íða­skóla Ís­lands með hlé­um frá ár­inu 1974 til 1982.

Árin 1983-1988 nam hún síð­an leir­list og glerl­ist við Sko­len for Brugskunst í Kaup­manna­höfn. Frá ár­inu 1989 hef­ur Inga Elín hald­ið fjölda einka­sýn­inga á verk­um sín­um hér á landi auk þess að hafa hald­ið sýn­ingu í London árið 1992. Að auki hef­ur hún tek­ið þátt í fjölda sam­sýn­inga, bæði hér á landi og ann­ars stað­ar á Norð­ur­lönd­um.

Inga Elín hef­ur starfað í full­trúa­ráði Sam­bands ís­lenskra mynd­list­ar­manna og ver­ið þar í stjórn á ár­un­um 2000 til 2002. Hún starf­aði sem mynd­mennta­kenn­ari í Mos­fells­bæ um nokk­urra ára skeið og rak um ára­bil list­hús­ið Gallerí Inga Elín í Reykja­vík.

Ingu El­ínu hafa hlotn­ast marg­vís­leg­ar við­ur­kenn­ing­ar fyr­ir störf sín, með­al ann­ars var hún bæj­arlista­mað­ur Mos­fells­bæj­ar árið 1997.


Verk í eigu Mos­fells­bæj­ar

Nafn lista­verks: Kona. 1993
Efni – að­ferð: Myndskreytt gler
Stærð: 43×32 cm
Hvenær keypt: 1994
Stað­setn­ing: Bóka­safn Mos­fells­bæj­ar
Eign Bóka­safns Mos­fells­bæj­ar

Nafn lista­verks: Skál. 1992
Efni – að­ferð: Myndskreytt gler­skál
Stærð: 29×29 cm, 4.5 cm á hæð
Stað­setn­ing: Bóka­safn Mos­fells­bæj­ar
Gjöf lista­manns­ins til Bóka­safns Mos­fells­bæj­ar

Nafn lista­verks: Þruma úr heið­skýru lofti. 1991
Efni – að­ferð: Brætt myndskreytt gler
Stærð: 66×49 cm
Hvenær keypt: 1992
Stað­setn­ing: Bóka­safn Mos­fells­bæj­ar – Lista­verka­geymsla

Nafn lista­verks: Varða
Efni – að­ferð: Gler og stein­steypa
Stærð: 180 cm
Hvenær keypt: 1997
Stað­setn­ing: Leik­skól­inn á Hlað­hömr­um

Nafn lista­verks:
Efni – að­ferð: Gler
Stærð: 180 cm
Hvenær keypt: 1995
Stað­setn­ing: Bóka­safn Mos­fells­bæj­ar
Gjöf bæj­ar­stjórn­ar Mos­fells­bæj­ar til Bóka­safns Mos­fells­bæj­ar.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00