Helga Jóhannesdóttir er fædd 1961. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1987-1991, utan eitt ár sem hún tók við Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn árið 1989.
Árið 1998 hélt hún til Bandaríkjanna þar sem hún lærði við Slippery Rock University í Pennsylvaniu.
Helga hélt m.a. einkasýningar í versluninni Epal árið 1992, tvær sýningar í Stöðlakoti í Reykjavík árin 1995 og 2000. Hún hélt einnig einkasýningu í The Clay Place Gallery í Pittsburgh í Bandaríkjunum árið 1998. Helga tók þátt í samsýningum í Listasafni Reykjavíkur og í Kairó, Egyptalandi árið 2000.
Helga er búsett í Mosfellsbæ og er með vinnustofu í Álafosskvos.
Verk í eigu Mosfellsbæjar
Nafn listaverks: Borð. 1992
Efni – aðferð: Jarðbrenndur steinleir, gler og málmur
Stærð: Borðplata: 65x85cm og hæð borðs: 40 cm
Hvenær keypt: 1992
Staðsetning: Kjarni, 3. hæð
Nafn listaverks: Gnægtir
Efni – aðferð: Leir
Hvenær keypt: 1999
Gjöf frá Menningar- og fræðslunefnd Mosfellsbæjar við opnun leikskólans árið 1999. Verkið skírskotar til allra þeirra hæfileika, möguleika og tækifæra sem barnið í hverjum einstaklingi býr yfir.