Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2011
Bergsteinn hefur komið að gerð fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, sem kvikmyndatökumaður.
Hann hefur hlotið Eddu verðlaunin fimm sinnum, fjórum sinnum fyrir kvikmyndatökustjórn og einu sinni fyrir bestu heimildarmyndina en Bergsteinn framleiddi myndina Syndir feðranna sem fjallaði um drengi sem voru vistaðir á upptökuheimilinu Breiðavík 1955-1974.