Fyrirkomulag
12. vikna námskeið í íþróttamiðstöðinni að Varmá.
- 3 sinnum í viku
- 1 sinnum í viku fræðsla og útivera/ganga
- 2 sinnum í viku inn í fimleikasal
- Facebook hópur til þess að miðla upplýsingum: Heilsa&Hugur
Tveir kennarar:
- Berta Þórhalladóttir
- Halla Karen Kristjánsdóttir
Útitími – Áherslur
- Tíminn er 90 mínútur
- Byrjum ávallt á að hittast inn í Fellinu
- Fræðsla
- Andleg vellíðan, næring, svefn, núvitund og hreysti
- Upphitun
- Ganga, val um mismunandi vegalengdir
- Teygjur inn í Fellinu eftir tímann
Áherslur í fimleikasalnum
- Styrkur
- Þol
- Liðleiki
- Jafnvægi
- Samhæfing
- Vinnum mikið með tónlist
- Hópefli
- Gleði
- Alltaf hægt að hafa val um erfiðleikastig æfingar
Uppbygging tímans
- 60 mínútur
- Byrjum á upphitun
- Meginþáttur
- Niðurlag og slökun
Búnaður
Útitími
- Vera klædd eftir veðri
- Getur verið gott að vera með göngustafi
Innitími
- Allir eru á sokkalistunum
- Þægilegum íþróttafatnaði
- Gott að vera með vatnsflösku með sér
Umsagnir þátttakenda
Flestir tóku fram:
- Bætt þol, styrkur og liðleiki
- Aukin hreyfifærni
- Betri andlegri vellíðan
- Hvað samveran og gleðin skipta miklu máli
„konan hefur batnað í sambúð (hún er líka á námskeiðinu)“
„Byrjaði með verki í öxlum að hausti, finn enga verki að vori“
„best af öllu að ég er svo gott sem laus við vefjagigtina“
„Svo gaman að vera innan um kátt og skemmtilegt fólk“
Markmið námskeiðsins: Að efla sjálfan sig
- Stöðumat í upphafi og í lok námskeiðs
- Heilsugæslan býður upp á ástandsmat og samtal
- Sjálfsmat í upphafi og í lok námskeiðs
- Áskoranir og verkefni
Líkamsþjálfun fyrir eldra fólk er gríðarlega mikilvæg
Rannsóknir sýna að með reglubundinni hreyfingu er hægt að hægja á þeim öldrunarbreytingum sem verða á líkamanum með hækkandi aldri.
Dæmi um ávinning af líkamsþjálfun eldra fólks
- Aukinn vöðvastyrkur
- Betra jafnvægi og þ.a.l. minni byltuhætta
- Aukið úthald við dagleg störf og tómstundir
- Aukinn liðleiki
- Hægir á beinþynningu
- Bætt starfsemi hjarta og æðakerfis
- Betri andleg líðan
- Eykur sjálfstraust, sjálfstæði
- Eykur magn endorfíns (gleðihormón)
- Dregur úr þunglyndi
- Bætir svefn
- Bætir hugsunargetu
- Hraðari efnaskipti
- Bætt melting
Heilsan er það dýrmætasta sem við eigum.
Við áttum okkur oft ekkert á því fyrr en við missum heilsuna hvað hún skiptir okkur miklu máli.
Regluleg og markviss hreyfing er öllum mikilvæg óháð aldri, líkamsgetu, andlegri heilsu eða holdafari.
Gerum hreyfingu að daglegri venju.
Heilsukveðjur,
Berta & Halla Karen