Samþykkt fyrir Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar.
1. gr.
Umhverfisnefnd fer með umhverfismál eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum og í samþykkt þessari.
2. gr.
Umhverfisnefnd er skipuð fimm fulltrúum og fimm til vara, kosnum af bæjarstjórn. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann. Kjörtímabil hennar er það sama og bæjarstjórnar. Nefndin skal halda gerðabók og skulu fundargerðir hennar sendar bæjarstjórn til staðfestingar. Fulltrúar í umhverfisnefnd skulu gæta þagmælsku um einkamálefni fólks sem fjallað er um á fundum nefndarinnar. Fulltrúi skal víkja af fundi, og kalla til varamann, tengist hann einstaklingum eða málum sem fjallað er um í nefndinni, þannig að spillt geti óhlutdrægni hans og valdið tortryggni.
3. gr.
Hlutverk umhverfisnefndar er að:
- Gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í umhverfismálum og hafa eftirlit með að stefna bæjaryfirvalda á hverjum tíma sé haldin.
- Hafa eftirlit með stofnunum, sem vinna að umhverfismálum, og fylgjast með að þær vinni að settum markmiðum, í samræmi við lög og veiti góða þjónustu.
- Leggja mat á þá þjónustu sem veitt er á vegum sveitarfélagsins í umhverfismálum með tölulegum upplýsingum og könnunum á meðal bæjarbúa. Einnig að fjalla um þær kvartanir sem berast vegna þjónustunnar.
- Fara yfir tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun hvers árs hvað varðar þá liði sem falla undir verksvið nefndarinnar og gæta þess í ákvörðunum sínum að halda áætlanir þegar að framkvæmdum kemur.
- Vera bæjarstjórn að öðru leyti til ráðuneytis í umhverfismálum.
4. gr.
Verkefni umhverfisnefndar eru að:
- Hafa umsjón og eftirlit með landbúnaðarmálum samkvæmt lögum um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. og fjallskilareglugerð.
- Hafa umsjón og eftirlit með náttúruvernd, skógrækt og landgræðslu skv. náttúruverndarlögum og lögum um landgræðslu.
- Hafa umsjón með árlegu vali og veitingu viðurkenninga til fyrirtækja og einstaklinga fyrir fallegt umhverfi.
- Hafa umsjón með skipulagi og almennri fegrun opinna svæða í bæjarfélaginu.
- Hafa eftirlit með almennri umhirðu og sorphirðu í bæjarfélaginu.
- Vera bæjarstjórn til ráðgjafar varðandi málefni sem tengjast Staðardagskrá 21.
- Vinna að öðrum þeim verkefnum sem bæjarstjórn felur nefndinni á hverjum tíma.
5. gr.
Forstöðumaður tækni- og umhverfissviðs, deildarstjóri umhverfisdeildar og garðyrkjustjóri sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt. Þeir eru ráðgjafar nefndarinnar og sjá um ritun fundargerða, nema nefndin ákveði annað. Deildarstjóri umhverfisdeildar undirbýr fundi í samstarfi við formann og framkvæmir ákvarðanir nefndarinnar eftir að bæjarstjórn hefur staðfest þær.
Um starfsmannamál fer eftir starfsmannastefnu Mosfellsbæjar.
6. gr.
Séu ákvæði í lögum eða samstarfssamningum um seturétt aðila utan nefndarinnar, þegar um mál þeim tengd er fjallað, skal þess gætt að þau ákvæði séu uppfyllt.
Nefndin skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga við meðferð mála.