Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Sam­þykkt fyr­ir Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar.

1. gr.

Skipu­lags­nefnd, hér eft­ir nefnd nefnd­in, er skipu­lags­nefnd í skiln­ingi 6. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og hef­ur hlut­verk og skyld­ur sam­kvæmt því . Svo og í sam­ræmi við sam­þykkt þessa.

2. gr.

Nefnd­in er skip­uð fimm full­trú­um og fimm til vara, kosn­um af bæj­ar­stjórn. Bæj­ar­stjórn kýs formann og vara­formann. Kjör­tíma­bil henn­ar er það sama og bæj­ar­stjórn­ar. Nefnd­in skal halda gerða­bók og skulu fund­ar­gerð­ir henn­ar send­ar bæj­ar­stjórn til stað­fest­ing­ar. Full­trú­ar í nefnd­inni skulu gæta þag­mælsku um einka­mál­efni fólks sem fjallað er um á fund­um nefnd­ar­inn­ar. Full­trúi skal víkja af fundi, og kalla til varamann, teng­ist hann ein­stak­ling­um eða mál­um sem fjallað er um í nefnd­inni, þann­ig að spillt geti óhlut­drægni hans og vald­ið tor­tryggni.

3. gr.

Hlut­verk nefnd­ar­inn­ar er að:

  • Gera til­lög­ur til bæj­ar­stjórn­ar um stefnu í skipu­lags­mál­um og hafa eft­ir­lit með að stefna bæj­ar­yf­ir­valda á hverj­um tíma sé hald­in.
  • Hafa for­ræði í skipu­lags­mál­um í bæj­ar­fé­lag­inu í sam­ræmi við gild­andi lög og reglu­gerð­ir hverju sinni.
  • Leggja mat á þá þjón­ustu sem veitt er á veg­um sveit­ar­fé­lags­ins í skipu­lags­mál­um með tölu­leg­um upp­lýs­ing­um og könn­un­um á með­al bæj­ar­búa. Einn­ig að fjalla um þær kvart­an­ir sem berast vegna þjón­ust­unn­ar.
  • Fara yfir til­lög­ur for­stöðu­manna að fjár­hags­áætlun hvers árs hvað varð­ar þá liði sem falla und­ir verksvið nefnd­ar­inn­ar og gæta þess í ákvörð­un­um sín­um að halda áætlan­ir þeg­ar að fram­kvæmd­um kem­ur.
  • Vera bæj­ar­stjórn til ráðu­neyt­is í skipu­lags­mál­um.

4. gr.

Verk­efni nefnd­ar­inn­ar eru að:

  • Fara með verk­efni sam­kvæmt skipu­lagslög­um og reglu­gerð­um og sam­þykkt­um bæj­ar­stjórn­ar og fylgjast með að ákvæði þeirra séu hald­in.
  • Hafa um­sjón með sam­keppn­um um skipu­lag, skip­un dóm­nefnda og úr­vinnslu á til­lög­um.
  • Fara með verk­efni um­ferð­ar­nefnd­ar sam­kvæmt um­ferð­ar­lög­um.
  • Gera til­lög­ur til bæj­ar­stjórn­ar um skipu­lag al­menn­ings­sam­gangna í Mos­fells­bæ, m.a. akst­urs­leið­ir og stað­setn­ingu bið­skýla.
  • Vinna að öðr­um þeim verk­efn­um sem bæj­ar­stjórn fel­ur nefnd­inni á hverj­um tíma.

5. gr.

Fram­kvæmda­stjóri um­hverf­is­sviðs, skipu­lags­full­trúi og bygg­ing­ar­full­trúi sitja fundi nefnd­ar­inn­ar með mál­frelsi og til­lögu­rétt og eru nefnd­inni ráð­gef­andi. Skipu­lags­full­trúi und­ir­býr og boð­ar fundi nefnd­ar­inn­ar í sam­ráði við formann, bygg­ing­ar­full­trúa og fram­kvæmda­stjóra um­hverf­is­sviðs og ann­ast rit­un fund­ar­gerða, nema nefnd­in ákveði ann­að. Fram­an­greind­ir emb­ætt­is­menn sjá um það hver á sínu sviði og eft­ir því sem lög kveða á um að fram­fylgja ákvörð­un­um nefnd­ar­inn­ar, eft­ir at­vik­um þeg­ar bæj­ar­stjórn hef­ur stað­fest þær.

Um starfs­manna­mál fer eft­ir mannauðs­stefnu Mos­fells­bæj­ar.

6. gr.

Séu ákvæði í lög­um eða sam­starfs­samn­ing­um um setu­rétt að­ila utan nefnd­ar­inn­ar, þeg­ar fjallað er um mál sem tengjast þeim, skal þess gætt að þau ákvæði séu upp­fyllt.

Nefnd­in skal gæta ákvæða stjórn­sýslu­laga við með­ferð mála.

Sam­þykkt þessi er sett með vís­an til 54. og 55. gr. sam­þykkt­ar um stjórn Mos­fells­bæj­ar og fund­ar­sköp bæj­ar­stjórn­ar nr. 621/2010.

Sam­þykkt á 556. fundi bæj­ar­stjórn­ar Mos­fells­bæj­ar þann 13. apríl 2011.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00