Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Sam­þykkt fyr­ir Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd.

1.gr.

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd fer með íþrótta-, tóm­stunda-, for­varna- og lýðs­heilsu­mál eft­ir því sem nán­ar er kveð­ið á um í lög­um og í sam­þykkt þess­ari.

2.gr.

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd er skip­uð fimm full­trú­um og fimm til vara, kosn­um af bæj­ar­stjórn. Bæj­ar­stjórn kýs formann og vara­formann. Kjör­tíma­bil henn­ar er það sama og bæj­ar­stjórn­ar. Nefnd­in skal halda gerða­bók og skulu fund­ar­gerð­ir henn­ar send­ar bæj­ar­stjórn til stað­fest­ing­ar.

Full­trú­ar í íþrótta- og tóm­stunda­nefnd skulu gæta þag­mælsku um einka­mál­efni fólks sem fjallað er um á fund­um nefnd­ar­inn­ar. Full­trúi skal víkja af fundi, og kalla til varamann, teng­ist hann ein­stak­ling­um eða mál­um sem fjallað er um í nefnd­inni, þann­ig að spillt geti óhlut­drægni hans og vald­ið tor­tryggni.

3.gr.

Hlut­verk og verk­efni íþrótta- og tóm­stunda­nefnd­ar:

  • Gera til­lög­ur til bæj­ar­stjórn­ar um stefnu í íþrótta-, tóm­stunda, for­varna- og lýð­heilsu­mál­um og hafa eft­ir­lit með að stefna bæj­ar­yf­ir­valda á hverj­um tíma sé hald­in.
  • Stuðla að því að sjón­ar­mið frí­stunda og lýð­heilsu sé flétt­uð í alla stefnu­mót­un og að­gerð­ir á veg­um bæj­ar­ins.
  • Efla sam­st­arf og fylgjast með fram­kvæmd íþrótta-, tóm­stunda-, for­varna- lýð­heilsu­mála og stuðla að því að stofn­an­ir/fé­lög vinni að sett­um mark­mið­um, í sam­ræmi við lög og veiti góða þjón­ustu.
  • Leggja mat á þá þjón­ustu sem veitt er á veg­um sveit­ar­fé­lags­ins í íþrótta-, tóm­stunda- for­varna- og lýð­heilsu­mál­um.
  • Stuðla að auk­inni þekk­ingu og fræðslu um íþrótta-, tóm­stunda-, for­varna- og lýð­heilsu­mál á með­al bæj­ar­búa, sér­stak­lega í þeim stofn­un­um/fé­lög­um sem fara með mál­efni barna og ung­linga.
  • Fjalla um til­lög­ur að fjár­hags­áætlun hvers árs hvað varð­ar þá liði sem falla und­ir verksvið nefnd­ar­inn­ar.
  • Fjalla um er­indi sem berast nefnd­inni.
  • Vera bæj­ar­stjórn að öðru leyti til ráðu­neyt­is í íþrótta, tóm­stunda-, for­varna- og lýð­heilsu­mál­um.
  • Efla íþrótta-, tóm­stunda, for­varna- og lýð­heils­ust­arf í Mos­fells­bæ og hafa um það sam­st­arf við fé­lög og að­ila sem starfa á því sviði.
  • Gera til­lögu til bæj­ar­stjórn­ar um styrki eða samn­inga til þeirra er starfa að íþrótta-, tóm­stunda-, for­varna- og lýð­heilsu­mál­um.
  • Koma fram fyr­ir hönd Mos­fells­bæj­ar varð­andi fram­kvæmd sam­starfs­samn­inga við íþrótta- og tóm­stunda­fé­lög og fund­ar reglu­lega með full­trú­um fé­laga.
  • Fylgjast með því að styrk­ir bæj­ar­ins í mála­flokk­un­um nýt­ist sam­kvæmt þeim mark­mið­um sem þeir eru ætl­að­ir til.
  • Stuðla að auk­inni þekk­ingu og fræðslu um íþrótta-, tóm­stunda-, for­varna- og lýð­heilsu­mál á með­al bæj­ar­búa, sér­stak­lega í þeim stofn­un­um/fé­lög­um sem fara með mál­efni barna og ung­linga.
  • Vinna að öðr­um þeim verk­efn­um sem bæj­ar­stjórn fel­ur nefnd­inni á hverj­um tíma.

4. gr.

Fram­kvæmda­stjóri fræðslu- og frí­stunda­sviðs, tóm­stunda­full­trúi og íþrótta­full­trúi sitja fundi nefnd­ar­inn­ar með mál­frelsi og til­lögu­rétt. Þau eru ráð­gjaf­ar nefnd­ar­inn­ar og sér um fram­kvæmda­stjóri fræðslu- og frí­stunda­sviðs að jafn­aði um rit­un fund­ar­gerða, nema nefnd­in ákveði ann­að. Hann und­ir­býr fundi í sam­starfi við formann og fram­kvæm­ir ákvarð­an­ir nefnd­ar­inn­ar eft­ir að bæj­ar­stjórn hef­ur stað­fest þær.

Stefna Mos­fells­bæj­ar í mannauðs­mál­um gild­ir fyr­ir starf­semi nefnd­ar­inn­ar eins og við get­ur átt.

5. gr.

Séu ákvæði í lög­um eða sam­starfs­samn­ing­um um setu­rétt að­ila utan nefnd­ar­inn­ar, þeg­ar um mál þeim tengd er fjallað, skal þess gætt að þau ákvæði séu upp­fyllt.

Nefnd­in skal gæta ákvæða stjórn­sýslu­laga við með­ferð mála.

Sam­þykkt á 727. fundi bæj­ar­stjórn­ar Mos­fells­bæja þann 31. 10. 2018.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00